Færsluflokkur: Íþróttir

If you can´t beat them, buy them!

Það fer að verða þreytandi að fylgjast með auðjöfrum, héðan og þaðan, sem eiga aðeins eitt sameiginlegt, að hafa ekki hundsvit á íþróttum, sanka til sín, stefnulaust, bestu íþróttamönnum heims, sem láta glepjast, enda er lífaldur íþróttamanna stuttur.  Hvað varð um gamla liðsandann?  Sáuð þið leikinn í gærkvöld, Island-Króatía?  Stórbrotinn leikur, þrátt fyrir tap!
mbl.is Pirlo á leið til Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslands-Túnis/Króatía

Hér er smá tilvitnun í vef IHF um leik Íslands og Túnis.  Ég hefði ekki getað orðað þetta betur sjálfur! Vladimir Canjuga er þjálfari Króatíu, svona til útskýringa.

 ,,In the final the team of Vladimir Canjuga plays against Island that won in a high-quality match with 33:31 in a packed hall. In the end the young team from Island was more persistent and took advantage from a missed penalty and a turnover after a technical mistake of the host team. Nevertheless, also the host showed an outstanding performance playing high speed handball in the hall at 40 degrees against Island in front of 2500 spectators."

ÁFRAM ÍSLAND!!!


Risinn er vaknaður!

Betra seint en aldrei að fjölmiðlar landsins vöknuðu.  Þetta er flott framtak og sjálfsagt, sérstaklega núna þegar landsmenn eru að fá RUV-nefskattinn inn um lúguna í fyrsta sinn.  Nú bíðum við bara spennt eftir leiknum.  ÁFRAM ÍSLAND.

P.S fyrirsögnin er fengin að láni frá FH-mafíunni, stuðningsmönnum knattspyrnuliðs FH, og er hér heimfærð á RUV-risann sísofandi.


mbl.is Úrslitaleikur Íslands og Króatíu í beinni á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland - Túnis

Ég vil benda áhugasömun á, þar sem fréttaflutningurinn af þessu móti er í skötulíki, að hægt er að horfa á leikinn í beinni á vef IHF.  Leikurinn hefst klukkan 20:00 að íslenskum tíma og slóðin er http://www.ihf.info/front_content.php?idcat=293  Góða skemmtun og áfram Ísland!
mbl.is „Bjartsýnn á að strákarnir nái sínum besta leik“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanþakklátur vandræðagemlingur.

Hroki og vanþakklæti Ibrahimovic ríður ekki við einteyming!  Eftir að haf verið settur út úr sænska landsliðinu fyrir agabrot, hætti hann að gefa kost á sér, í stað þess að skammast sín og biðjast afsökunar!  Eftir að hafa fengið að verða Ítalíumeistari með Inter, oftar en einu sinni, vandar hann þeim ekki kveðjuna; þvílíkur hroki og þvílíkt vanþakklæti!  Sagan mun dæma hann.
mbl.is Handarbrotinn Zlatan úthúðar Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggið

Ég hef lengi haft óbeit á bloggi og bloggurum.  Mér hefur þótt þetta afar hallærislegt og heimskulegt fyrirbrigði og ljóður á annars ágætri tækni sem netið er.  Heimskulegastar eru þó athugasemdarfærslurnar við fréttir!

Það kom því vel á vondan þegar ég innritaði mig í Háskóla Íslands að mér var gert að halda úti bloggsíðu, sem hluta af skilduverkefnum í ,,Upplýsingatækni í skólastarfi´´.  Ég er því undir það búinn að taka á móti skömmum og svívirðingum frá reyndum bloggurum, en vonandi þó frekar vel rökstuddum athugasemdum um mikilvægi bloggsins.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband